KJÖTHLAÐAN
Fjöldi uppskrifta:
Hversdags naut
Nautaat-skyndibiti
Nautanautn-ljúft
Snakk-smáréttir
Nautahakkréttir
Nautapottur
Hollt og mjótt
Eldað fyrirfram
Naut á grillið

RÁÐ UNDIR RIFI
Krakka hakk í kvöld

Stundum ákveða börn og unglingar að þau borði ekki hakk. Ef til vill hafa þau fengið nóg af "hraðsteiktu" pönnuhakki og einhverskonar pasta en margar aðrar léttir góðar leiðir eru...
Fleiri ráð

LEITIN

UM NAUTAKJÖT

VEITINGAHÚSIÐ
Bautinn - Akureyri

Ætlar þú sækja Akureyri heim á komandi vikum? Það er ljóst að á fáum veitingahúsum þessa lands hefur verið borðað meira nautakjöt síðustu áratugi en á Bautanum á Akureyri....
Öll greinin



  Prentvæn útgáfa 

Íslenskt nautakjöt

Grillráð

 

 

Stilltu grillið á meðalhita þannig að þú getir haldið hendinni rétt ofan við steikarflötinn bara meðan þú telur upp í fimm.

 

Gefðu kjötinu tækifæri til að ná stofuhita áður en þú  byrjar að grilla, steikingin verður jafnari og betri og grilltíminn styttist.

 

Ekki snúa kjötinu sí og æ, helst bara einu sinni.

 

Ekki skera í kjötið til að kanna hvort það sé steikt, lærðu að finna hvort kjötið er fullsteikt með því að þrýsta á það með grilltönginni. Lítið steikt kjöt er mjúkt, meðalsteikt lætur aðeins undan en mikið steikt er þétt. Þegar búið er að snúa steik og rauðleitir safapollar myndast ofan á henni er hún nálægt því að vera meðal steikt.

 

Það er hægt að setja steikina aftur á grillið ef hún er of lítið steikt en ekki hægt að “steikja sneiðina minna eftir á.”

 



Grillpinnar með hakki og grænmeti

 

600 g   Nautahakk

6 msk  Brauð rasp

2 msk  AB-mjólk eða vatn

2 msk  Graslaukur/laukur, saxaður

½ tsk   Salt

¼ tsk   Piparmix

 

1 stk    Paprika, rauð bitar

1 stk    Eggaldin sneiðar

10 stk  Kirsuberjatómata

1 stk    Laukur, stór

8 stk   Sveppir

 

Hrærið saman hakkinu og salti vel bætið svo í raspnum, AB-mjólkinni, lauknum og kryddinu. Látið bíða á meðan grænmetið er skorið í bita sem gott er að þræða upp á grillpinna. Mótið litlar bollur, gætið þess að þær séu hæfilega fastar í sér. Ef deigið er of mjúkt er sniðugt að bæta meiri brauðraspi saman við. Þræðið bollurnar á grillpinnana og grænmetið að vild þar á milli. Grillið pinnana uns tilbúið. Einnig má steikja þá í ofninum.



Nautagrillborgarar sem bragð er að

800 gr    nautahakk

3           jalapenoaldin - niðursoðin - söxuð

100 gr    cheddarostur - rifinn

1/2        laukur

1/2 tsk   cummin

salt

pipar

hamborgarabrauð ef vill

 

Hrærið saman í skál nautahakki og salti, þá tolla hamborgararnir betur saman, bætið öllu hinu í og hrærið alveg saman. Mótið hamborgara 1-2 cm á þykkt. Grillið í útigrilli eða heilsugrilli á borði. Njótið með eða án brauðs og veljið meðlæti að eigin smekk.

 

 
Grillaður nautavöðvi

 

Veljið meyran nautavöðva eitt passlegt stykki fyrir alla, t.d. vel hanginn innanlærisvöðva, fille eða lund, reiknið með um 250 gr af kjöti á mann.

 

Kryddlögur:

 

3 msk. olía

1 smátt saxaður laukur

1 tsk. grófmalaður, svartur pipar

1 tsk. tímían

2 msk. sojasósa

 

Blandið öllu saman í kryddlögin og setjið vöðvan í bað í kryddleginum í sterkum plastpoka yfir nótt í ísskáp eða í 1-2 klst á eldhúsbekknum. Grillið nautavöðvan heilann. Notið kjöthitamælir, sjá Ráð undir rifi, um notkun hans og steikartíma.

 

Grillaður nautavöðvi er góður með hverju sem er,

 -líka einn og sér sem hollt, lúxus snakk, t.d. með rauðvínstári eða bjór.

 






Kristín Linda

Miðhvammi


LEIÐARINN
Kristín Linda skrifar þann 20. maí
Heit grill, holur og hitarar, vörumst slys..

Mjög alvarleg slys hafa orðið þegar börn hafa rekið sig í kolagrill og fengið kolin glóandi yfir sig og gasgrill eru sannarlega líka heit og ekki má gleyma holum sem grafnar eru...
Leiðarar

BAULAÐU NÚ!
Gerum göngu hátt undir höfði

Göngu er hægt að stunda hvar sem er - en það getur verið skemmtilegra að fara á bílnum á gott göngusvæði en að ganga alltaf af stað frá eigin heimili. Við hikum ekki við að aka í...
Meira baul

SKRÁIÐ MIG
Vilt þú vera með á póstlistanum? Hér getur þú skráð þig.

Nafn:
Netfang:
Sími

SPURNINGIN

Hefur þú borðað hamborgara svona?

Tvo saman sem samloku án brauðs með osti og grænmeti á milli ?
12%
Grillaða á ofngrind, skorið í 4 parta - borið fram á ristuðu brauði sem pinnamat?
8,4%
Vel kryddaða kalda sem álegg í samlokur ?
22,9%
Tvo á mann með bakaðri kartöflu, sveppum, papriku og lauk án brauðs?
25,3%
Heita með kartöflustöppu og brúnni sósu?
3,6%