Íslenska vorið og nautakjöt eiga alveg magnaða samleið, afhverju, jú sjáum til um leið og vorar fáum við íslendingar ómótstæðilega löngun til að fara út með mat og matreiða hann á grilli í stað hefðbundinna matargerðar.
Gallinn er bara sá að íslenska vorið er ekki endilega ávísun á notalegan yl og logn við grillið. Grillmeistarar hefjast því oft handa fullir bjarstýni en koma inn með blátt nef af kulda, lopna fingur og reykt augu svo tárum tekur.

En ...margur grillmeistarinn sem hefur ákveðið að prófa að leggja lag sitt við nautakjöt kemst að því að ef nautakjöt liggur á grillinu verður verkefnið reyklaus!
En það er ekki öll sælan því það er ótrúlega fljótlegt að grilla nautasneiðar og steikur og varla að nefið nái að blána áður en sest er að borði.
Er ekki alveg magnað að krydda nokkrar sneiðar með piparblöndu hússins að morgni dags og koma þeim fyrir í íláti með loki á eldhúsbekknum?
Þegar kvöldverðurinn nálgast eiga þau svo stefnumót, nautasneiðarnar, grillmeistarinn, grillið og úrvalssaltið. Nautasneiðar eru bæði roðlausra og beinlausar og jafnvel fitulausar, því er máltíðin snyrtileg og vandræðalaus.
|